Fréttir

Jólamarkaður í Heiðmörk 2022

Skógræktarfélag Reykjavíkur stendur fyrir fjölbreyttum viðburðum á aðventunni. Notaleg jólastemning, skógrækt og skógarmenning eru í forgrunni. Í ár verður  jólamarkaður við Elliðavatn, Jólaskógur á Hólmsheiði og jólatrjáasala á Lækjartorgi.

 

Jólamarkaðurinn við Elliðavatn

Jólamarkaðurinn við Elliðavatnsbæ í Heiðmörk er haldinn allar aðventuhelgar af Skógræktarfélagi Reykjavíkur. Undanfarin ár hefur verið mikil og ljúf jólastemming og ánægjulegt að sjá að heimsókn á markaðinn hefur fest sig í sessi sem aðventuhefð hjá mörgum.

Með jólamarkaðnum vill félagið stuðla að ævintýralegri upplifun í vetrarparadísinni Heiðmörk þar sem fólk getur notið útiveru í skóginum, valið jólatré og einstakar gjafir á handverksmarkaðnum og fengið sér hressingu. Félagið selur að sjálfsögðu aðeins íslensk jólatré. Fyrir hvert jólatré sem selst eru 50 gróðursett. Á handverksmarkaðnum er sérstök áhersla lögð á einstakt handverk, innlend matvæli og snyrtivörur og umhverfisvænar vörur. Boðið verður upp á dagskrá í Rjóðrinu nærri Elliðavatnsbænum, þar sem barnabókahöfundar lesa úr verkum sínum um klukkan 14 alla opnunardaga. Undanfarin ár hefur oft myndast ævintýraleg skógarstemmning í Rjóðrinu, við varðeld  í skjóli trjánna.

Gestum er bent á að klæða sig vel og njóta útivistarsvæðisins í Heiðmörk þegar þeir heimsækja Jólamarkaðinn. Út frá Elliðavatnsbænum er fjöldinn allur af gönguleiðum sem sjá má á korti hér.

 

Jólatrjáasala – sjálfbærni og vistvæn ræktun

Megnið af jólatrjánum sem Skógræktarfélagið selur, koma úr Heiðmörk. Öll trén sem boðið er upp á á markaðnum eru íslensk og eru því mun vistvænni en innflutt tré. Kolefnisspor þeirra er margfalt minna en influttra trjáa og þau eru ræktuð án skordýraeiturs. Fyrir hvert selt tré eru 50 gróðursett.

Auk jólatrjánna er boðið upp á hin vinsælu tröpputré, greinabúnt og eldivið.

Skógræktarfélagið fagnar fjölbreytileikanum og hefur um árabil boðið upp á Einstök jólatré. Þetta eru tré með mikla sérstöðu og eru í öllum stærðum, gerðum, formum og tegundum. Það er alltaf mikil stemmning að finna einstöku trén fyrir markaðinn og spennandi að sjá hvaða gersemar hafa fundist í skóginum. Margir fastakúnnar koma sérstaklega til að kaupa einstöku tréin og skemmta sér við að velja, oft á tíðum mjög skúlptúrísk tré.

Verðskrá fyrir jólatré og tröpputré má nálgast hér.

 

Jólamarkaðstré

Á hverju ári býður Skógræktarfélagið myndlistarmanni eða hönnuði að skreyta jólamarkaðstréð. Unndór Egill Jónsson skreytið jólamarkaðstréð í ár með skrauti sem unnið er úr birki sem grisja þurfti í Heiðmörk.

 

Handverksmarkaður

Á handverksmarkaðnum er hægt að finna einstakar jólagjafir unnar af handverksfólki, bændum í matvælavinnslu og listamönnum. Mikið af vörunum eru ekki aðgengilegar í verslunum svo hér gefst einstakt tækifæri til að versla bæði spennandi matvörur og jólagjafir á einum stað. Sérstök áhersla er lögð á vandaðar handunnar vörur úr náttúrulegum efnum, listhanverk úr viði, innlend matvæli og snyrtivörur og umhverfisvænar vörur.

Handverksmarkaðurinn er staðsettur í fremmri og neðri salnum í Elliðavatnsbænum auk þess sem sölukofar eru á torginu við bæinn. Eldsmiður verður að störfum úti við og fleira spennandi að gerast.

 

Opnunartímar Jólamarkaðarins í Heiðmörk

Jólamarkaðurinn verður í Heiðmörk allar aðventuhelgarnar, frá klukkan 12:00 til 17:00.

Aðventuhelgar 2022:

26.-27. nóvember

3.-4. desember

10.-11. desember

17.-18. desember

Jólaskógurinn á Hólmsheiði

Í Jólaskóginum á Hólmsheiði er hægt að höggva eigið jólatré. Hægt er að fá lánaðar sagir á staðnum en við hvetjum gesti til að taka með sér sínar eigin sagir.

Leiðarlýsingu og nánari upplýsingar má finna hér.

Verðskrá fyrir jólatré má nálgast hér.

Opið verður eftirtaldar helgar, frá 11:00 til 16:00.

4.-5. desember

11.-12. desember

18.-19. desember

 

Jólatrjáasala á Lækjartorgi

Skógræktarfélagið í samstarfi við Reykjavíkurborg mun nú einnig bjóða upp á jólatrjáasölu á Lækjartorgi 17. til 22. desember. Notaleg stemmning verður í gróðurhúsinu sem nú er staðsett á Lækjartorgi. Boðið verður upp á jólatré, tröpputré og greinabúnt.

Opnunartímar Lækjartorgi:

17. des lau kl. 14 – 18

18. des sun kl. 14 – 18

19.-22. des mán – fim kl. 16 – 20

 

Nánari upplýsingar:

Facebook