Á döfinni, Fréttir

Stólpaleit – tölvuvæddur ratleikur í Heiðmörk

Í sumar tökum við þátt í að setja upp „stólpaleit“ í Heiðmörk.
Stólpaleitin er eins konar tölvuvæddur ratleikur. Notandi leitar uppi stólpana sem eru á gönguleiðum á nokkrum stöðum á landinu. Stólparnir eru síðan „klukkaðir“ í appi og um leið breytir punkturinn um lið á kortinu í símanum. Markmiðið er að klukka sem flesta stólpa.
Stólparnir og leiðirnar eru með mismunandi erfiðaleikastig. Grænn er auðvelur, til dæmis sléttir stígar; blár krefst smá leitar; og svartur er t.d. í fjallshlíðum.
Hugmyndin er sótt til Noregs þar sem byrjað var með stólpaleit árið 2015.
Í Heiðmörk er verið að setja upp stólpaleit á gönguleið sem verður alls 42,2 kílómetrar. Stólparnir verða á gönguleiðum og við áhugaverða og fallega staði.
Stefnt er að því að hópur fólks noti leiðina til að fara eitt maraþon, í tengslum við Reykjavíkurmaraþonið í ágúst. Hópurinn ætlar að ganga merktar leiðir í aðdraganda hlaupsins, og ljúka svo maraþoninu með 10 kílómetra hlaupi á Menningarnótt.
Meiri upplýsingar um verkefnið má finna á www.stolpaleit.is