Síðustu vikur höfum við verið á fullu í gróðursetningum og notið góðrar hjálpar frá fjölda sjálfboðaliða og landnemahópa.
Fyrsti sjálfboðaliðahópurinn kom 18. maí og gróðursetti með starfsmönnum félagsins í Esjuhlíðum, í Loftslagsskógunum Úlfarsfelli og í Vetrargarðinum í Breiðholti. Alls gróðursetti hópurinn 5.000 trjáplöntur á tveimur vikum. Margar þeirra stórar hnausaplöntur.
Í vikunni kom hópur nemenda og starfsmanna Vassar College í New York ríki og gróðursetti með okkur um 2.000 plöntur í Úlfarsfelli. Nemendahópar frá skólanum hafa komið til okkar síðustu ár og tekið þátt í að græða upp illa farið land.
Landnemahópar hafa líka sýnt dugnað við gróðursetningar í Heiðmörk. Bæði með því að hugsa um eldri svæði þar sem gróðursetningar hófust fyrir áratugum. Og með því að halda áfram gróðursetningum á svæðum þar sem gróðurþekjan er enn takmörkuð.

