Á döfinni, Fréttir

„Skjól í skóginum“ í Ráðhúsinu á Menningarnótt

Velkomin í heimsókn í skóginn í Ráðhúsinu á Menningarnótt!

Á Menningarnótt, laugardaginn 22. ágúst, er Skógræktarfélag Reykjavíkur gestur Reykjavíkurborgar í Ráðhúsinu, í tilefni 125 ára afmælis félagsins.
Áhersla verður á notalega skógarstemningu og að kynna fólk fyrir skóginum og öllu því sem hann býður upp á.

Dagskrá hefst upp úr klukkan 13, með ávarpi Hildar Björnsdóttur borgarstjóra sem býður félagið velkomið sem gest Menningarnætur. Eftir það verður ljósmyndasafn Skógræktarfélags Reykjavíkur afhent Ljósmyndasögusafni Reykjavíkur til varðveislu. Í safninu eru um tíu þúsund myndir úr starfi félagsins. Boðið verður upp á skógarköku.

Dagskrá stendur yfir milli 13 og 18. Yfir daginn verður skógarstemning í Ráðhúsinu og

  • Ilmmynd/skógarsturta eftir Sonju Bent
  • Ljósmyndasýningin „Frá rofabörðum til borgarskóga“
  • Tálgun
  • Trjábolir sagaðir í bekki með keðjusög
  • Kynning á íslenskum viðarafurðum úr Heiðmörk
  • Íslenskt birki. Saga, þróun og framtíð. Þorsteinn Tómasson plöntuerfðafræðingur sýnir mismunandi yrki og ræðir við gesti
  • Skógarvörðurinn í Heiðmörk verður á staðnum og ræðir við gesti
  • Stafræn myndasýning „Svipmyndir úr starfi Skógræktarfélags Reykjavíkur“

 

Um 13  Ávarp borgarstjóra, afhending ljósmyndasafns og skógarveitingar
14          Benedikt Erlingsson – Hugvekja
14:30    Leiðsögn um ljósmyndasýninguna „Frá rofabörðum til borgarskóga“
15:00    Kvæðakórinn Iðunn
15:30    Leiðsögn um ljósmyndasýninguna „Frá rofabörðum til borgarskóga“
16:00    Þóranna Björnsdóttir
Um 17   Mugison

Frá 14:30 til 16:30 býður Þórdís Sigmarsdóttir upp á leiðsögn um tálgun. Hægt er að setjast og tálga undir handleiðslu hennar. Börn eru velkomin í fylgd forráðamanna en ekki er boðið upp á barnapössun.

Við hlökkum til að sjá ykkur á Menningarnótt.