Á döfinni, Fréttir

„Tálgað og talað“: Námskeið um tálgun og kennslu

„Tálgað og talað“: Námskeið um tálgun og kennslu, miðvikudaginn 5. ágúst

Leiðbeinandi er Þórdís Halla Sigmarsdóttir, kennari og B.Ed og MA í umhverfis- og náttúrusiðfræði. Fjallað verður um
-Hvað þarf til að kenna tálgun úti í náttúrunni: Undirbúning, skipulag og framkvæmd.
-Grunnatriði í tálgun.
-Hvernig nota má tálgun til að auka tengingu barna við náttúruna og núvitund.

Námskeiðið verður í Smiðjunni við Elliðavatnsbæinn í Heiðmörk, miðvikudaginn 5. ágúst, frá 14:00-17:30. Tálgunarhnífar og efniviður verða á staðnum.

Námskeiðið hentar smíðakennurum sem vilja koma sér af stað í tálgun, áhugasömum kennurum sem vilja taka fyrstu skref í þessu formi útikennslu, og fólki sem vill tálga og njóta náttúrunnar með börnum.

Þátttakendur eru vinsamlega beðnir um að skrá sig með því að senda tölvupóst á [email protected]. Þátttökugjald er 15.000 krónur en 10.000 fyrir félagsmenn í Skógræktarfélagi Reykjavíkur.