Fréttir

Bekkir og borð frá Fangaverki

Ný borð með áföstum bekkjum eru nú komin upp á nokkrum stöðum í Heiðmörk. Húsgögnin eru gerð úr sitkagreni úr Heiðmörk. Fangaverk, nánar tiltekið fangar sem vinna á trésmíðaverkstæðinu á Litla-Hrauni, smíðuðu borðin og bekkina fyrir Skógræktarfélag Reykjavíkur.

Nokkrum bekkjum hefur verið komið fyrir á völdum stöðum í Heiðmörk, svo að gestir friðlandsins geti fengið sér sæti og notið náttúrunnar. 

Bekkir með borðum eru einnig til sölu í verslun félagsins í Smiðjunni nærri Elliðavatnsbænum.

Efniviðurinn í bekkina og borðin: sitkagreni úr viðarvinnslu félagsins í Heiðmörk.
Borð með áföstum bekkjum
Húsgögnin eru gerð úr sitkagreni úr Heiðmörk

2 thoughts on “Bekkir og borð frá Fangaverki

Comments are closed.