Á döfinni, Fréttir

Shinrin-yoku (skógarbað) laugardaginn 31. október

Shinrin-yoku í Heiðmörk hefur vakið mikla athygli og lukku. Næsta shinrin-yoku er laugardaginn 31. október.
Nauðsynlegt er að skrá sig og komast aðeins 10 að á hvern viðburð. Tilvalin leið til að takast á við streitu og upplifa töfra skógarins og náttúrunnar.
Skógarbað (shinrin-yoku), varð til í Japan 1982 sem leið til að draga úr streitu, tíðum lífsstílssjúkdómum og versnandi lýðheilsu. Að viðburðunum stendur Nature and Forest Therapy Iceland, í samstarfi við Skógræktarfélag Reykjavíkur.
Fjallað hefur verið um shinrin-yoku í Heiðmörk m.a. í Heimildinni og Tímariti hjúkrunarfræðinga. Stefnt er að því að bjóða upp á shinrin-yoku í lok nóvember á þessu ári og í lok mars, apríl og maí á næsta ári.
Könnun sem gerð hefur verið meðal þátttakenda, hefur leitt í ljós umtalsverð jákvæð áhrif á skógarbaði.
Hvernig er skógarbaðið?
Skógarbað í Heiðmörk er tveggja klukkustunda leidd slökun í Heiðmerkurskógi og við jaðar Elliðavatns. Gengin er stutt vegalengd (að hámarki 1 km) og á leiðinni er þátttakendum boðið í upplifun sem getur auðveldað þeim að slaka á, beita skynfærunum og eflt tengsl sín við náttúru og sig sjálf. Einnig gefst tækifæri til að sitja í þögn og að deila upplifun sinni með öðrum. Við lok göngu eru góðar líkur á að þátttakendur upplifi meiri ró og yfirvegun og séu í meiri tengslum við náttúruna í kringum sig.
Skráning
Öll sem náð hafa 15 ára aldri eru velkomin. Viðburðurinn er ókeypis. Þess er farið á leit að þátttakendur svari stuttum spurningalista fyrir og eftir gönguna. Nauðsynlegt er að skrá þátttöku hér í viðburðinum með því að senda tölvupóst á [email protected].
Vegna eðli viðburðarins er þátttaka takmörkuð við 10 manns. Sjái fólk fram á að komast ekki, óskum við eftir að það afskrái sig.
Við fylgjumst vel með veðurspá. Ef veður er mjög vont, getur komið til þess að viðburði verði aflýst. Við látum þá vita af því í tölvupósti.
Hvar og hvenær?
Við hittumst við Elliðavatnsbæinn. Ef komið er frá Reykjavík, er ekið yfir brúna við Helluvatn, til hægri eftir fyrsta afleggjara, og svo aftur til hægri meðfram vatninu, þar til komið er að Elliðavatnsbænum.
Gangan hefst stundvíslega klukkan 11, laugardaginn 31. október. Þátttakendur eru beðnir um að mæta eigi síðar en kl. 10:50. Ekki verður hægt að slást í hópinn eftir að gangan hefst.
Hvað á að hafa með sér?
Mikilvægt er að mæta á staðinn vel nærð og útbúin fyrir 2 tíma hæglætis útivist og kyrrsetu. Þátttakendur fá vatnsheldar sessur til afnota. Mælt er með að fólk klæðist hlýjum, þægilegum og vatnsheldum fötum og grófum skóm. Gott að taka með sér teppi, vatn eða jafnvel eitthvað heitt að drekka á hitabrúsa.