Fréttir

Nýtt met á Ríkishring í sjöunda Heiðmerkurhlaupinu

Heiðmörk skartaði sínum fegurstu haustlitum þegar sjöunda Heiðmerkurhlaupið fór fram, laugardaginn 26. september.

Rúmlega 150 tóku þátt, þar á meðal nokkrir fastagestir sem taka þátt á ári hverju.
Stefán Pálsson sló nýtt met í Ríkishring, á 44 mínútum og 13 sekúndum. Arnar Pétursson átti fyrra met, 44:28. Daði Arnarsson var í öðru sæti karla á 47:08 og Elís Björnsson var í þriðja á 47:39

Sigurvegari kvenna var Ágústa Dröfn Pétursdóttir með tímann 55:19. Auður Kristín Pétursdóttir var í öðru sæti á 55:19 og Sigríður Kristjánsdóttir í því þriðja á 58:48.

Öll úrslit má nálgast á Tímataka.is.

Heiðmerkurhlaupið er haldið í samstarfi Skógræktarfélags Reykjavíkur við Fjallakofann og Náttúruhlaup. Ölgerðin sá um drykkjarstöðvar fyrir hlaupara.