Lokað verður fyrir bílaumferð um brúna yfir Helluvatn vegna viðgerðar, frá og með miðvikudeginum 21. janúar. Áfram er opið fyrir umferð gangandi vegfarenda, hjólafólks og hestafólks.
Fara þarf yfir brúna til að aka inn í Heiðmörk Reykjavíkurmegin, í elsta hluta Heiðmerkur og að Elliðavatnsbænum. Áfram er hægt að aka frá Suðurlandsvegi að Rauðhólum. Þá er hægt að leggja þar og halda áfram inn í Heiðmörk. Við bendum á kort af Heiðmörk með merktum bílastæðum.
Áætluð verklok í lok febrúar
Viðgerðin felst í endurnýjun á burðar- og slitklæðningu, vegriði og brúarvegriði. Þá verður malarslitlag á veginum við brúna lagað. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg kemur fram að viðgerðin eigi að taka um fimm vikur.
Samkvæmt því ætti viðgerð brú að vera komin í gagnið í síðustu vikunni í febrúar, nærri 25. febrúar. Við hlökkum til að fagna endurnýjaðri brú með útivistargestum.
Veghefill og vonandi betri vegir með vorinu
Brúin yfir Helluvatn var orðin illa farin sem hefur valdið margskonar vandræðum undanfarin misseri. Veghefill hefur til dæmis ekki komist yfir hana, þar sem öxulþungi hefur takmarkast við 5 tonn. Eftir viðgerðina þolir hún bifreiðar með allt að 8 tonna öxulþunga. Veghefillinn mun því komast inn í Heiðmörk á ný.
Við hlökkum því til þess að með vorinu verði hægt að bæta vegina í Heiðmörk til muna.
Viðarverslunin og Elliðavatnsbær
Á meðan á viðgerð brúarinnar stendur, verður ekki hægt að aka að viðarverslun félagsins í Smiðjunni, né Elliðavatnsbænum. Við viljum auðvitað koma til móts við viðskiptavini og halda áfram að afgreiða vörur á borð við eldivið og borðvið.
Endilega hafið samband í síma eða með tölvupósti og við finnum leiðir til að afgreiða vörur. Síminn er 856-0058 og tölvupóstfangið sala (hjá) heidmork.is.
Enn er lokað fyrir almenna bílaumferð um Heiðmörk frá bílastæðinu við Búrfell, Garðabæjarmegin, að Heimaási, Reykjavíkurmegin. Veitur óskuðu eftir því í lok nóvember, að lokað yrði fyrir almenna bílaumferð á svæðinu, vegna þess að mikil hálka var talin ógna vatnsvernd.
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Reykjavíkurborg.
