Fréttir

Spennandi hleðslunámskeið á næstunni

img_1339

Námskeiðið er í samvinnu við Endurmenntunarskóla Tækniskólans. Hér á síðunni má sjá hleðslur sem gerðar voru á síðasta námskeiði. Efri myndin er af myndarlegum torfsófa sem landslagsarkitektinn Kolbrún Þóra Oddsdóttir hannaði og sú neðri sýnir hleðsluvegg utan um sorptunnur.

Námskeiðið er opið öllum sem hafa áhuga á grjóthleðslum með fornri aðferð. Annars vegar hleðslur úr grjóti eingöngu og hins vegar úr grjóti og torfi. Þátttakendur fá leiðsögn um undirstöðuatriði við grjóthleðslur og verklega þjálfun.

Kennari: Guðjón Kristinsson skrúðgarðyrkjumeistari

Tími: 9. maí og 16. maí, alls 16 klst.

Námskeiðsgjald: 26.500 kr.

Staðsetning: Elliðavatn. .

Nánari upplýsingar um námskeiðið fást hjá Endurmenntunarskólanum í s. 514 9601 og á [email protected]

Ath. Flest stéttarfélög greiða um 75 prósent af námskeiðakostnaði

img_1343