Öll meðferð elds er bönnuð í Heiðmörk og Esjuhlíðum næstu daga, vegna aukinnar eldhættu. Gróður er ekki búinn að taka við sér eftir veturinn og er mjög viðkvæmur og þurr.
Eldvarnarstöðvar hafa verið setta upp á helst áningastöðum Heiðmerkur. Þar má finna vatnsbrúsa, vatnskönnur, eldklöppur og skóflu.
Verum á varðbergi og pössum upp á öryggi í sameiningu.
Verði fólk vart við eld, er það beðið að hringja í 112. Miklu skiptir að skjótt sé brugðist við ef eldur kviknar. Gestir friðlandsins í Heiðmörk og í Esjuhlíðum, er hvattir til að hugsa vel um náttúruna.
Samkvæmt veðurspá er ekki von á úrkomu fyrr en um helgina, en áfram spáð sólskini. Það er því viðbúið að áfram verði eldhætta að minnsta kosti fram að helgi.
Við mælum með vefsíðunni Gróðureldar, þar sem hægt er að fræðast gróðureldum, forvarnir og viðbrögð við þeim.
Við bendum einnig á þennan fróðleik sem félagið tók saman um gróðurelda, forvarnir og viðbúnað.
