Á döfinni, Fréttir

Skógræktarátak með skólabörnum og Vinnuskólanum

Ráðist verður í skógræktarátak í Reykjavík, samkvæmt verkefnalista nýrrar borgarstjórnar Reykjavíkur.

190 verkefni eru á verkefnalistanum og á að hrinda þeim í framkvæmd á næstu 100 dögum, næstu 12 mánuðum eða næstu 4 árum. Á meðal þeirra verkefna sem eiga að hefjast á næstu 12 mánuðum er

„Við ætlum að tryggja sumarstörf í Vinnuskólanum fyrir ungmenni við skógrækt í samstarfi við Skógræktarfélag Reykjavíkur.“

og

„Við ætlum að hefja skógræktarátak með leik- og grunnskólabörnum í Reykjavík og planta minnst 50 þúsund trjáplöntum á kjörtímabilinu.“

Við hlökkum til samstarfsins og þess að rækta fallega og skjólgóða skógar í höfuðborginni, sem við öllum getum notið góðs af.