Skyrgámur mætti á Hlaðinu og í Barnastundinni í Rjóðrinu í dag. Hér sést hann sýna töfrabrögð, sem vöktu mikla athygli barna á staðnum. Á neðri myndinni má sjá viðbrögðin.
Á morgun er síðasti dagurinn í hinum vinsæla Jólaskógi í Hjalladal og einnig er Jólamarkaðurinn á Elliðavatni opinn í síðasta sinn.
Jólatrjáasalan á Hlaðinu á Elliðavatni verður hinsvegar opin alveg fram að jólum.