Sumardaginn fyrsta hefst veiðitímabilið í Elliðavatni. Af því tilefni bjóða Skógræktarfélag Reykjavíkur, Veiðifélag Elliðavatns og Veiðikortið til veiðigleði kl. 10-14 fimmtudaginn 23. apríl við Elliðavatnsbæinn.
Boðið verður upp á leiðbeiningar og góð ráð um vatnaveiði. Leikir og þrautir fyrir börn og hressing í lok dags.
Öll velkomin og frítt að veiða í vatninu.
Dagskrá:
Kl. 10:00 – 11:00 Veiði og lífríki Elliðavatns. Caddisbræður og Óli Urriði verða með sína árlegu fræðslukynningu og umræðu. Sérstakir gestir verða, Elliðavatnssnillingar.
Kl. 11:00 – 12:00 Skógarþrautir með Skógræktarfélagi Reykjavíkur. Varðeldur og sykurpúðar ef gróður verður ekki of þurr.
Kl. 12:00 – 13:30 Veiðihátíð krakkanna.
Kl. 12:00 Fræðsluefni fyrir börn á myndrænu formi sem er unnið af Tökustuð.
Kl. 12:30 Lífríkið skoðað, léttur og skemmtilegur ratleikur við Elliðavatnsbæinn.
Kl. 13:00 Grillaðar pylsur.
Skemmtilegir leikir fyrir börnin með vinningum.
Veiðimenn og unnendur Elliðavatns eru hvattir til að mæta og fagna komu veiðisumarsins. Þetta er einnig kjörið tækifæri fyrir nýliða til að kynna sér veiði í Elliðavatni. Veiðimenn geta keypt Veiðikortið á staðnum.
Um veiði í Elliðavatni
Elliðavatn er vinsælasta veiðivatn höfuðborgarsvæðisins og afar gjöfult. Veiðitímabilið hefst á sumardaginn fyrsta og lýkur 15. september og er daglegur veiðitími frá kl. 7:00 -24:00. Vatnið er í rúmlega 70 m hæð yfir sjávarmáli og um 1,8 km2 að flatarmáli, mesta dýpi er rúmir 2 m en meðaldýpi um 1 m. Í Elliðavatnið renna Bugða og Suðurá. Hólmsá heitir áin nokkru ofar, áður en hún skiptist í Bugðu og Suðurá. Í vatninu eru bleikja, urriði, lax og stöku sjóbirtingur. Bleikjan var ríkjandi í vatninu en síðasta áratug hefur urriðinn sótt í sig veðrið og er nú að verða algengasta fiskitegundin í vatninu. Lax og sjóbirtingur ganga í vatnið úr Elliðaánum og upp í Hólmsá. Jöfn veiði er í vatninu en vatnið er þó sérstaklega vinsælt í maí. Ýmsar upplýsingar um veiði í Elliðavatni má finna á vef Veiðikortsins (sjá hér) og fróðleik og góð ráð má finna í bæklingi um veiði í vatninu eftir Geir Thorsteinsson hér.




