Fréttir

Skógarleikarnir 2016

Annað árið í röð efnir Skógræktarfélag Reykjavíkur til Skógarleikanna í Heiðmörk. Nokkrir af færustu skógarhöggsmönnum Suður- og Vesturlands munu leiða saman hesta sína í hefðbundnum skógarhöggsgreinum svo sem axarkasti, bolahöggi og afkvistun trjábola. Í leikslok fá gestir að spreyta sig í axarkastinu. Stjórnandi leikanna er skógfræðingurinn Gústaf Jarl og dómari er Björn Bjarndal eða hinn eini sanni skógarbjörn.

Furulundur verður uppfullur af ævintýrum þennan dag. Gestir fá tækifæri til að spreyta sig í tálgun í ferskan við beint úr skóginum undir leiðsögn tálgunarmeistarans Valdórs Bóassonar. Eldsmiðurinn Einar Gunnar mun sýna listir sínar og hamra heitt járnið yfir logandi eldi. Borðtennisborð og ýmis skógarleiktæki eru einnig í lundinum.

Gestum er boðið í grillveislu þar sem grillað verður meðal annars yfir varðeldi skógarbrauð á priki og rjúkandi ketilkaffi verður einnig á boðstólum.

Skógræktarfélagið bíður alla hjartanlega velkomna og vonast til að gestir á öllum aldri geti átt ævintýralega upplifun í Furulundi þennan sumardag.

Fylgist með okkur á Snapchat: heidmork
Allar frekari upplýsingar veitir Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir í síma 690-9874.