Fréttir

Sjálfboðaliðar að vinnu í Esju

Þessa dagana er verið að sinna árlegu viðhaldi á gönguleiðinni upp Esjuna. Sjálfboðaliðarnir á myndunum  leggja á sig mikið erfiði við burð á stórgrýti til að laga steinþrep og frárennsli við stíginn.

Sjálfboðaliðarnir (Iceland Conservation Volunteers – sjá www.icv.is)  eru ráðnir beint af Umhverfisstofnun og hafa komið til Íslands undanfarin sumur til að sinna viðhaldi og dýrmætum úrbótum á friðlýstum svæðum og útivistarperlum Íslands. Skógræktarfélag Reykjavíkur hefur umsjón með útivistarsvæði Esjuhlíða í samstarfi við Reykjavíkurborg og Rannsóknarstöð Skógræktar ríkisins á Mógilsá.esjavor1esjavor2