Fréttir

Mikið fjölmenni á vormarkaðnum um helgina

Vormarkaður félagsins fór vel af stað um helgina, þrátt fyrir lágan lofthita og litið sólskin. Á kaffistofunni runnu vörurnar frá Sólheimum  út og nýbökuð kerfilsbrauðin og gulrótarsúpa að hætti hússins nutu mikilla vinsælda. Á myndinni má sjá sýnikennslu á vegum trérennismiða sem var í skjóli austan undir Gamla salnum og vakti verðskuldaða athygli. Sölusýningin sjálf er hins vegar niðri í Gamla sal og má þar sjá margan eigulegan gripinn. Heimasíða félagsins:

vormarkaur_2010__-trerennsli

http://www.trerennismidi.is/