Fréttir

Jólaskógurinn opnar á Hólmsheiði um helgina

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri fær þann heiður að opna Jólaskóginn fyrir höfuðborgarbúa með því að höggva fyrsta tréð klukkan 11.00 laugardaginn 13.desember. Allur ágóði af sölu jólatrjáa rennur til uppbyggingar og viðhalds Heiðmerkur.
dagur með jólatré
Mynd: Hulda Gunnarsdóttir Það er alltaf mikil stemning þegar fjölskyldan fer saman í Heiðmörk að höggva sitt eigið jólatré. Í ár verður Jólaskógurinn á Hólmsheiði, í nágrenni Heiðmerkur, helgarnar 13.-14.desember og 20.-21.desember frá klukkan 11 til 16. Hólmsheiði, fara Suðurlandsveg, beygja inn Hafravatnsveg og þar taka svo skilti við sem vísa á Jólaskóginn.
kort fyrir jólaskóg og jólamarkað (1)
Jólasveinar koma í heimsókn alla dagana og varðeldur er kveiktur. Boðið verður uppá heitt kakó og jólalög sungin. Sagir og klippur verða til útláns. Einnig eru jólatré seld á Jólamarkaðinum Elliðavatni í Heiðmörk þar sem opið verður allar helgar í aðventu. kl. 11-16.
þvörusleikir að höggva tré
Íslensk jólatré eru vistvæn. Þau eru ræktuð án eiturefna og eru ekki flutt milli landa. Í staðinn fyrir hvert tré sem er höggvið gróðursetur félagið að minnsta kosti þrjátíu tré.

Frábær dagskrá á Jólamarkaðinum um helgina fyrir alla fjölskylduna, sjá nánar á fésbókarsíðunni Jólamarkaðurinn Elliðavatni.
rjóður
Áhugasamir áheyrendur í Rjóðrinu síðastliðinn sunnudag.