Á döfinni, Fréttir

Jólamarkaðurinn og Jólaskógurinn opna um helgina

Jólamarkaðurinn í Heiðmörk og Jólaskógurinn á Hólmsheiði opna núna um helgina 2.–3. desember. Jólamarkaðurinn verður opinn báða dagana, kl. 12–17; og Jólaskógurinn frá 11–16.

Sú skemmtilega hefð hefur skapast við opnun Jólamarkaðsins, að sönghópur úr Norðlingaskóla syngi jólalög. Þann dag er Jólamarkaðstréð einnig opinberað en í ár er það skreytt af listamanninum Lilý Erlu Adamsdóttur.

Á Jólamarkaðnum við Elliðavatnsbæinn verður handverksmarkaður, jólatrjáasala, upplestur rithöfunda í Rjóðrinu og jólastemmning. Á handverksmarkaðnum geta gestir keypt margskonar vandaðar handverksvörur. Félagið verður einnig með sölu á jólatrjám, tröpputrjám og greinabúntum sem til dæmis henta til skreytinga, í kransa eða á leiði. Á torginu við bæinn verður jólastemmning: Jólamarkaðstréð á torginu miðju, eldsmiður að störfum við snarkandi eld og tónlist af og til. Þá verður hægt að kaupa nýristaðar möndlur, kaffi, kakó, mandarínur, kleinur og smákökur frá Brikk.

Í kjallara Elliðavatnsbæjarins verður sérstakur jólasalur. Þar geta gestir  sest inn og yljað sér við arineld. Salurinn er skreyttur af 10-12 ára nemendum Hjallastefnunnar. Í Rjóðrinu, skammt frá Elliðavatnsbænum, verður hægt að hlýða á rithöfunda lesa úr nýútkomnum bókum, við varðeld, klukkan 14 hvern opnunardag. Núna á laugardaginn lesa þær Ingileif Friðriksdóttir og María Rut Kristinsdóttir úr bókinni Úlfur og Ylfa. Á sunnudaginn les Embla Bachman, höfundur bókarinnar Stelpur stranglega bannaðar!

Í Jólaskóginum á Hólmsheiði getur fólk svo sótt sitt eigið tré út í skóg. Skógurinn er á sama stað og í fyrra. Varðeldur er á staðnum, jólasveinar kíkja í heimsókn, og hægt að kaupa kaffi og kruðerí.

Upplýsingar um jólaviðburði Skógræktarfélags Reykjavíkur eru hér.

Jólatré við Elliðavatnsbæinn.
Tröpputré af ýmsum stærðum og gerðum.
Í Jólasalnum geta gestir Jólamarkaðsins sest inn og yljað sér. Salurinn er skreyttur af nemendum á miðstigi hjá Hjallastefnunni.
Lilý Erla með skraut á sem hún vann fyrir Jólamarkaðstréð 2023. Skrautið er úr viði úr Heiðmörk.
Jólamarkaðstréð 2023.