Fjöldi góðra gesta hefur komið í viðarvinnslu Skógræktarfélags Reykjavíkur í Heiðmörk undanfarnar vikur. Meðal annars nokkrir hópar nemenda sem vonandi eiga eftir að vinna mikið úr íslensku timbri á komandi árum og áratugum.
Nemendur í húsa- og húsgagnasmíði við Tækniskólann koma reglulega í vettvangskennslu í Heiðmörk. Þar er sagt frá skógrækt og sjálfbærri nýtingu skógarafurða. Einnig er fjallað um umhverfis- og loftslagsmál, hvernig unnið er úr timbrinu og eiginleika mismunandi timburtegunda. Yfirleitt fá nemendurnir tækifæri til að fylgjast með þegar tré er fellt úti í skógi og hvernig bolum er flett í borðvið í stórviðarsög. Vettvangsnámið er hluti af því að þróa viðarvinnslu og timburiðnað á Íslandi. Greinin á eftir að vaxa mjög á næstu áratugum í takt við aukið viðarmagn í íslenskum skógum.
Nú í mars fengu nemendurnir það verkefni að smíða koll. Fætur kollsins eru úr innfluttri furu en setan er úr innlendri ösp úr viðarvinnslunni í Heiðmörk.
Nemendur í myndlist við Listaháskólann komu líka í heimsókn á dögunum, til að kynnast efniviði úr skóginum.
Skógræktarfélag Reykjavíkur tekur á móti fjölmörgum hópum frá LHÍ og öðrum menntastofnunum á hverju ári. Við fögnum áhuga á skógrækt og viðarafurðum!