Haldin verður alþjóðleg ráðstefna um líforku, PELLETime symposium, dagana 18. – 20. ágúst nk. í íþróttahúsinu á Hallormsstað á Fljótsdalshéraði. Ráðstefnan er hluti af PELLETimeverkefninu sem Héraðs-og Austurlandsskógar ásamt Skógrækt ríkisins á Austurlandi taka þátt í á vegum Norðurslóðaáætlunar Evrópusambandsins (NPP). Auk þessara aðila á Íslandi taka stofnanir í Skotlandi, Svíþjóð og Finnlandi þátt, Finnar leiða verkefnið. Ráðstefnan fjallar um líforku, timbur og skyld efni og hvernig við getum nýtt okkar náttúruauðlindir á ábyrgan hátt. Ráðstefnan mun fara fram á ensku, en fyrirlesarar eru m.a. frá Íslandi, Noregi, Skotlandi, Finnlandi og Svíðþjóð. Ráðstefnan hefst á hádegi þann 18. ágúst. Ráðstefnugjöld eru kr. 5.000 og innifalið í því er ráðstefnan, tveir kvöldverðir og skoðunarferð þann 20. ágúst.Nemar greiða engin ráðstefnugjöld. Óskað er eftir að skráningar berist á netfangið; [email protected] Væntanlegum þátttakendum er bent á gistimöguleika á Hallormsstað sem finna má á slóðinni:http://www.graihundurinn.is/ sími: 471-2400
Alþjóðleg ráðstefna um líforku á Hallormsstað
14 ágú
2009