Landnemahópar í Heiðmörk eru vel á annað hundrað og má segja að landnemastarfið sé óslitinn –og mikilvægur- þráður í starfi Skógræktarfélagsins alveg frá því Heiðmörk var opnuð árið 1950.
Um landnemastarfið almennt er hægt að fræðast hér:
https://heidmork.is/index.php?option=com_content&task=view&id=49&Itemid=50
En á myndinni fyrir ofan má sjá Ronald Fatalla formann Filipinsk-íslenska félagsins þegar hann mætti til gróðursetninga 4. júlí í nýjum reit félagsins ásamt fjölskyldu sinni, Steinunni Marie og Ethani Rafni, þriggja ára. Á neðri myndinni sést svo gróðursetningarhópurinn. Skógræktarfélagið býður félagið velkomið í Heiðmörk og fagnar öllum sem leggja hönd á plóg í skógræktinni.
Heimasíða nýju landnemanna: http://fi-com.org/news.php