Á döfinni, Fréttir

Veist þú um eitt af Hverfistrjám Reykjavíkur? 

Í sumar útnefnir Skógræktarfélag Reykjavíkur Hverfistré Reykjavíkur, í öllum tíu hverfum borgarinnar. Óskað er eftir tilnefningum frá íbúum og áhugafólki.

Valið verður úr tilnefningunum og fá eigendur trjánna viðurkenningarskjöl með stuttum umfjöllunum um Hverfistré hvers hverfis, þann 25. ágúst 2024. Önnur glæsileg eða athyglisverð tré verða skráð sérstaklega og þannig stutt við skrásetningu merkilegra trjáa í borginni.

Tré í borgum hafa mikil og góð áhrif á umhverfið og líf borgarbúa. Þau skapa skjól, draga úr mengun, eru búsvæði fugla og skordýra og gera umhverfið fallegra og skemmtilegra. Rannsóknir hafa sýnt fram á bein og mælanleg tengsl milli trjágróðurs í borgum og betri heilsu.

Hægt er að tilnefna einstaka tré, runna, trjáraðir eða lundi. Ástæður fyrir tilnefningu geta verið margskonar. Til dæmis að tréð eigi sér merkilega sögu eða að ákveðin trjáröð sé einkennandi fyrir hverfið. Þá getur verið að gróðurinn veiti gott skjól eða að tré laði að mikið fuglalíf eða að trjálundur sé góður samkomustaður fyrir fólk í hverfinu. Sum tré eru frábær til að klifra í, önnur óvenjuleg og enn önnur bara sérlega falleg.

Hverfistré verða útnefnd fyrir öll hverfi borgarinnar, samkvæmt hverfaskiptingu Reykjavíkurborgar:

  • Hverfistré Árbæjar
  • Hverfistré Breiðholts
  • Hverfistré Grafarholts-Úlfarsárdals
  • Hverfistré Grafarvogs
  • Hverfistré Háaleitis-Bústaða
  • Hverfistré Hlíða
  • Hverfistré Kjalarness
  • Hverfistré Laugardals
  • Hverfistré Miðborgar
  • Hverfistré Vesturbæjar

Þó trjárækt í Reykjavík eigi sér tiltölulega stutta sögu, eru mörg merkileg tré, fallegar trjáraðir og lundir í borginni. Finna má aldargömul tré með fróðlega sögu. Í sumum hverfum og einstökum götum eru ákveðnar tegundir áberandi — oft reynitré, birki eða aspir. Það getur verið vegna þess hvað var í boði á þeim tíma eða eiginleika trjánna og samspils þeirra við umhverfið. Þá má víða finna óvenjuleg tré,  svo sem álm, ask, hrossakastaníu, fjallaþin og eik.

Skógræktarfélag Reykjavíkur hvetur fólk til að senda inn tilnefningar á netfangið [email protected]. Rökstuðningur og mynd mega gjarna fylgja, þó það sé ekki skilyrði. Tekið er við tilnefningum til loka júlí.

Hægt er að tilnefna einstaka tré eða runna en einnig trjáraðir eða trjágróður sem myndar góða heild.
Garðahlynurinn á horni Suðurgötu og Vonarstrætis er með þekktari trjám borgarinnar.
Tré sem blómast snemma á vorin veita skordýrum fæðu og gegna þannig mikilvægu hlutverki fyrir lífríkið.
Fallegt reynitré í Fossvoginum.