Tré mánaðarins

Tré októbermánaðar – Beyki

Tré mánaðarins er skógarbeyki (Fagus sylvatica) í garði við Laufásveg 43.

Jón Eiríksson steinsmiður byggði húsið árið 1901.  Það er einingahús sem flutt var inn frá Noregi í svonefndum sveitserstíl, sem er byggingastíll timburhúsa sem ríkjandi var í Evrópu seinnihluta 19. aldar og vel fram á 20. öldina. Árið 1916 eignuðust Sigríður Halldórsdóttir og Vigfús Guðmundsson frá Engey húsið og bjuggu þar til dauðadags. Börn þeirra bjuggu í húsinu til 1994.  Nokkrum árum síðar var búslóðin  flutt í Árbæjarsafn enda að mestu óbreytt í  áratugi og þykir gefa góða innsýn í heimili reykvískra borgara á fyrrihluta 20. aldar.  Hluti búslóðarinnar er nú til sýnis  í Árbæjarsafni. Núverandi eigendur Laufásvegar 43 eru Ragnhildur Þórarinsdóttir og Bergur Benediktsson.

Vigfús frá Engey var búfræðingur og mikill áhugamaður um trjárækt, gróðursetti hann fjölda trjáa í garði sínum, þeirra á meðal skógarbeykið, tré októbermánaðar.   Það er nú   13 metrar  á hæð og  ummál  132 cm  í  1,30 m frá jörðu.  Skógarbeyki er hitakær  trjátegund og sjaldgæf hér á landi. Þekktustu beykitrén vaxa í  Hellisgerði í Hafnarfirði, hlykkjótt en lagleg tré frá því um 1930 sem eru byrjuð að mynda fræ.   Þá er eitt vel þekkt  sunnan undir Miðbæjarskólanum, en tréð í garðinum Laufásvegi 43 teljum við  vera  það hæsta á landinu. Í garðinum vex  einnig 15-16 m  hár garðahlynur og askur sem var gróðursettur árið 1928 og leiða má líkur að því að það ár hafi skógarbeykið einnig verið gróðursett. Því  hallar töluvert inn í garðinn neðan til og er það vegna þrengsla í uppvexti, en á seinni árum hefur það breitt mikið úr sér.

beyki_-2

Skógarbeykið er ein af tíu tegundum beykis sem vaxa um alla mið- og

sunnanverða Evrópu.   Það er viðkvæmt fyrir vorfrostum og

vindnæðingi  og gerir töluverðar kröfur til hita á vaxtartímanum,

vex til dæmis nær eingöngu  syðst á  Skandinavíuskaganum. Þá er

svepprót talin mjög mikilvæg til að tréð nái góðum þroska. Það

er laufmikið og myndar  dimma og ríkjandi  skóga.  Afbrigði

skógarbeykis er blóðbeykið með svartrauð laufblöð, það má sjá

nokkuð víða í görðum, ma. við Laufásveg. Tréð heldur laufum sínum fram eftir vetri og  ung tré gjarnan fram á vor.

 

Auk þess sem skógarbeykið þykir mikil prýði í görðum og útivistarsvæðum á meginlandinu  bæði stakt og í limgerði,  hefur það lengi verið  verðmætt skógartré,  nær oft 30 metra hæð og verður 200 ára gamalt.  Viðurinn er talinn afbragðs eldiviður og einnig mikið notaður í húsgagnasmíði og  gólfklæðningar svo dæmi séu tekin. Aldinið er hneta sem er gott skepnufóður og einnig mannafóður í hallærum.

Beyki óx hér á landi á hlýviðrisskeiðum í fjarlægri fortíð,  fyrir 8-16 milljónum ára þegar landið var sennilega hluti af brú milli Evrópu og Ameríku. Endurkoma beykisins nú er auðvitað fagnaðarefni, hlýnunin  framundan, svo varasöm sem hún að öðru leyti er,  mun auka líkurnar á að beyki vaxi og dafni  hér  og verði hluti af  skógarauðlind okkar  í framtíðinni.

Einar Þorleifsson vísaði  dómnefnd Skógræktarfélags Reykjavíkur  á skógarbeykið og kunnum við honum bestu þakkir fyrir. Dómnefndin hvetur borgarbúa til að koma með fleiri tilnefningar um Tré mánaðarins því verkefninu lýkur ekki fyrr en í maí 2009. Netfangið er  [email protected] eða sími 8560058.