Sveppanámskeið Skógræktarfélags Reykjavíkur verður í Heiðmörk laugardaginn 4. september kl. 14. Eins og fyrir ári síðan verður leiðbeinandi Ása Margrét Ásgrímsdóttir, sveppaáhugakona og höfundur bókarinnar Matsveppir í náttúru Íslands. Ása Margrét leiðir áhugasama um kjörlendi sveppa í Heiðmörk og leiðbeinir við greiningu og tínslu. Áhugasömum náttúruunnendum gefst þarna kjörið tækifæri til að læra grunnatriðin í sveppatínslu og hægt verður að kaupa bók hennar á staðnum, en hún kom nýverið út í annari útgáfu hjá Forlaginu. Lagt verður upp frá Furulundinum í Heiðmörk kl. 14. Munið að hafa meðferðis körfur og góða hnífa.
Sveppanámskeið laugardaginn 4. september
25 ágú
2010