Á döfinni, Fréttir

Sumargleði við Elliðavatn á sumardaginn fyrsta!

Á sumardaginn fyrsta hefst veiðitímabilið í Elliðavatni. Af því tilefni bjóða Skógræktarfélag Reykjavíkur og Veiðikortið til veiðigleði kl. 10-14 fimmtudaginn 20. apríl við Elliðavatnsbæinn. Caddisbræðurnir Hrafn og Ólafur Ágúst ásamt Ólafi Tómasi í Dagbók Urriða veita leiðbeiningar og góð ráð og Skógræktarfélagið býður upp á gönguferð. Hressing í boði í tilefni dagsins – Allir velkomnir!

Dagskrá:

Kl. 10 -14 Aðstoð við veiðimenn, leiðbeiningar og góð ráð er varða veiði í Elliðavatni.

Kl. 11  Caddisbræður og Ólafur Tómas – örnámskeið og fyrirlestur í Elliðavatnsbænum um vatnaveiði með áherslu á Elliðavatn.

Kl. 13 – 14 Gönguferð frá Elliðavatnsbænum um Heimaás.

Veiðimenn og unnendur Elliðavatns eru hvattir til að mæta og fagna komu veiðisumarsins. Þetta er einnig kjörið tækifæri fyrir nýliða til að kynna sér veiði í Elliðavatni. Veiðimenn geta keypt Veiðikortið eða dagsleyfi á staðnum.

Gönguferð um Heimás

Skógræktarfélagið bíður upp á gönguferð frá Elliðavatnsbænum kl. 13 – 14. Gengið er meðfram Elliðavatni og um skóginn í Heimaásnum. Vatnið er ekki aðeins vinsælt á meðal veiðimanna heldur einnig áhugafólks um fugla. Fuglalífið er fjölskrúðugt en flórgoði, himbrimi og húsönd eru á með varpfugla við vatnið. Um Heimaásinn liggja skemmtilegir stígar um fjölbreyttan skóg. Viðarvinnsla félagsins er við Heimaás og þar er komið stuttlega við í lok göngunar. Margrét Valdimarsdóttir, starfsmaður félagsins leiðir gönguna sem er stutt og þægileg, rétt rúmir 2 km – verið öll velkomin!

Um veiði í Elliðavatni

Elliðavatn er vinsælasta veiðivatn höfuðborgarsvæðisins og afar gjöfult. Veiðitímabilið hefst á sumardaginn fyrsta og lýkur 15. september og er daglegur veiðitími frá kl. 7:00 -24:00. Vatnið er í rúmlega 70 m hæð yfir sjávarmáli og um 1,8 km2 að flatarmáli, mesta dýpi er rúmir 2 m en meðaldýpi um 1 m. Í Elliðavatnið renna Bugða og Suðurá. Hólmsá heitir áin nokkru ofar, áður en hún skiptist í Bugðu og Suðurá. Í vatninu eru bleikja, urriði, lax og stöku sjóbirtingur. Bleikjan var ríkjandi í vatninu en síðasta áratug hefur urriðinn sótt í sig veðrið og er nú að verða algengasta fiskitegundin í vatninu. Lax og sjóbirtingur ganga í vatnið úr Elliðaánum og upp í Hólmsá. Jöfn veiði er í vatninu en vatnið er þó sérstaklega vinsælt í maí. Ýmsar upplýsingar um veiði í Elliðavatni má finna á vef Veiðikortsins (sjá hér) og fróðleik og góð ráð má finna í bæklingi um veiði í vatninu eftir Geir Thorsteinsson hér.

Veiði í Elliðavatni.

Göngustígur meðfram Elliðavatni, stokkendur í forgrunni.