Skógræktarfélag Reykjavíkur tekur við rekstri á stærstum hluta af húsakosti og lóða að Mógilsá, þar sem rannsóknarmiðstöð Lands og skóga hefur verið til húsa. Jafnframt fær Skógræktarfélag Íslands hluta af húsnæðinu að Mógilsá og verða skrifstofur félagsins þar.
Mógilsá verður miðstöð skógræktar, fræðslu og samfélagslegrar þátttöku.
„Þetta er gert til að efla skógrækt á Íslandi og til að efla félagslega þáttinn í skógrækt.“ Sagði Ágúst Sigurðsson, forstöðumaður Lands og skógar (áður Skógræktin) þegar tilkynnt var um samkomulagið í gærkvöld, á fagráðstefnu skógræktar. Á myndinni hér að ofan er Ágúst í miðju, milli þeirra Auðar Kjartansdóttur, frkvstj. SR og Jónatans Garðarssonar, formanns SÍ, þegar tilkynnt var um samninginn.
Aðstaðan á Mógilsá var þjóðargjöf Norðmanna árið 1961, til að efla skógrækt á Íslandi og styrkja menningartengsl milli landanna.
Á Mógilsá mun Skógræktarfélag Reykjavíkur reka öfluga starfsstöð. Höfuðstöðvar félagsins verða áfram í Heiðmörk. Félagið mun byggja upp og vernda skóga svæðisins og að gera þá aðlaðandi og aðgengilega þeim sem þá vilja nýta til hreyfingar og útivistar. Félagið mun einnig vinna að umsjón með trjásafni (Arboretum) í Esjuhlíðum, eflingu á fræðslu til almennings og skóla, móttöku gesta og námsmanna, rannsóknum og fræðastarfi.Loks verður unnið að þróun miðstöðvar fyrir skógræktarstarf á Íslandi, m.a. með því að leita að og bjóða til þátttöku áhugasömum aðilum í faginu.
Skógræktarfélag Reykjavíkur hefur séð um skógrækt og rekstur útivistarsvæðanna í Esjuhlíðum frá aldamótaárinu 2000. Þetta eru jarðirnar Mógilsá og Kollafjörður. Markvisst hefur verið unnið að uppbyggingu útivistarinnviða fyrir mismunandi hópa útivistargesta.


