Oslóartréð var fellt í Heiðmörk í gær. Tréð er rúmlega tólf metra hátt sitkagreni sem líklega var gróðursett árið 1972. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri felldi tréð með aðstoð Sævars skógarvarðar. Oslóartréð – jólatré Reykvíkinga – kom upphaflega sjóleiðina frá Noregi, sem tákn um vináttu borganna. Síðustu ár hefur verið hægt að sækja það í Heiðmörk, vegna þess hve vel skógurinn hefur vaxið og dafnað.
Kveikt verður á ljósunum á Oslóartrénu á Austurvelli núna á sunnudag, við hátíðlega dagskrá.
Jólatré Þórshafnarbúa hefur einnig komið úr Heiðmörk síðustu ár og hafa Eimskip flutt það til Færeyja. Kveikt var á ljósum trésins á Tinghúsvellinum síðasta laugardag.
![Oslóartréð sitkagreni vetur snjór](https://heidmork.is/wp-content/uploads/2023/11/Osloartred-sitkagreni-vetur-snjor-768x1024.jpg)
![IMG_2027](https://heidmork.is/wp-content/uploads/2023/11/IMG_2027-1024x768.jpg)
![vetur snjór heiðmörk](https://heidmork.is/wp-content/uploads/2023/11/vetur-snjor-heidmork-768x1024.jpg)
![vetur skógur kannski skógarfura](https://heidmork.is/wp-content/uploads/2023/11/vetur-skogur-kannski-skogarfura-768x1024.jpg)