Fréttir

Leitin að hæstu eikinni

eik_09_09_006

Eik er sjaldgæf tegund og hefur lengi þótt of hitakær til að geta þrifist hér landi. Því var það að Skógræktarfélagsmenn ráku upp stór augu þegar þeim var bent á 6,30 metra háa eik í garði við Háagerði 11 hér í borg.Var eikin mæld og skoðuð, kannaður uppruni hennar og saga  og ákveðið að efna til  leitar að hæstu eik landsins eða einhverri sem gæti þá hugsanlega skákað Háagerðiseikinni. Hún var gróðursett 1982 og hafði þá verið í dvala í kjallara hússins í heilan áratug! Upphaflega  var hún sótt í skóg utan við borgina Vaxjö í Svíþjóð.  Þetta er  að öllum líkindum tegund sem Svíar kalla sumareik (Quercus robur).Vaxjö er í Smálöndunum og álíka norðarlega og miðhluti  Skotlands.   Hér má sjá fróðleik um eikina á ensku:  http://en.wikipedia.org/wiki/Quercus_robur . Og umfjöllun í þættinum Út um græna grundu laugardag 17. okt.:  http://dagskra.ruv.is/ras1/4492934/2009/10/17/

Þeir sem vita um stæðilegar eikur hér á landi eru vinsamlegast beðnir  um að senda félaginu  upplýsingar, sem síðan verða birtar hér.

Tengiliður: [email protected],  sími 8560058

t_fr_eik