Fréttir

Landnemar taka á móti gestum í kvöld

Í kvöld tekur Ferðafélag Íslands á móti gestum í reit sínum efst við Heiðarveg.  Þaðan verður gengið með leiðsögn eftir skógarstíg um hinn glæsilega reit Ferðafélagsins, sem er með þeim elstu í Heiðmörk.  Síðan  liggur leiðin  í reit Norðmanna og er stutt móttaka þar með kaffiveitingum í  “hyttu”þeirra á Torgeirsstöðum.

Það er milt og gott veður í Heiðmörk þessa stundina og allir velkomnir í kvöldgönguna sem hefst kl 20.