Á döfinni, Fréttir

Heiðmerkurhlaupið laugardaginn 23. september

Laugardaginn 23. september verður Heiðmerkurhlaupið haldið í fjórða sinn.

Skráning fer fram á hlaup.is og þar má nálgast nánari upplýsingar um hlaupið. Skráningu lýkur klukkan 12 á hádegi, föstudaginn 22. september.

Boðið er upp á tvær vegalengdir: 12 km hlaup um hinn rómaða Ríkishring og 4,7 km skemmtiskokk um Gula hringinn. Eftir hlaupið er boðið upp á kakó og kaffi yfir varðeldi.

  • Kl. 11:00. 12 km – Ríkishringur. Ræst frá Símamannalaut (200 metra frá Borgarstjóraplani).
  • Kl. 12:00. 4,7 km – Guli hringurinn – skemmtiskokk. Ræst frá Símamannalaut. Einnig má nýta þessa leið sem gönguleið.
  • Kl. 12:30. Verðlaunaafhending fyrir fyrstu sætin og útdráttarverðlaun frá Fjallakofanum.

Skógræktarfélag Reykjavíkur stendur fyrir hlaupinu í samvinnu við Náttúruhlaup og Fjallakofann. Með hlaupinu vill félagið bjóða fastagestum og nýjum áhugahlaupurum að kynnast stígakerfinu í Heiðmörk og njóta þess að hlaupa í faðmi skógarins. Heiðmerkurhlaupið var fyrst haldið 2020 í tilefni af því að 70 ára voru liðin frá því Heiðmörk var vígð. Útivistarsvæði á borð við Heiðmörk hafa mikil jákvæð áhrif á lýðheilsu og því tilvalið að fagna afmælinu með þessum hætti.

Við hvetjum alla velunnara svæðisins og þá sem áhuga hafa á að kynnast hlaupum í skóginum til að taka þátt í Heiðmerkurhlaupinu!

Keppnisgögn verða afhent í Fjallakofanum, Hallarmúla 2, fimmtudaginn 21. september kl. 10-18, Í Elliðavatnsbæ frá kl. 9:30 – 10:30 á keppnisdag og föstudaginn 22. september milli kl 13:00 og 17:00.

Athugið: 4 km eru frá Elliðavatnsbænum þar sem keppnisgögn eru afhent og að Borgarstjóraplani. Frá bílastæði á Borgarstjóraplani eru 200 metrar að Símamannalaut þar sem hlaupið hefst.