Á döfinni, Fréttir

Góð stemning á Jólamarkaðnum og í Jólaskóginum

Fallegt veður og góð góð stemning hefur verið á jólaviðburðum félagsins það sem af er aðventunni. Jólamarkaðurinn í Heiðmörk opnaði með kórsöng Norðlingaskóla, laugardaginn 29. nóvember. Aðra aðventuhelgina var sérlega fallegt veður – ís á Elliðavatni, harmonikkutónlist á torginu við Elliðavatnsbæinn, varðeldur og bóklestur í Rjóðrinu, huggulegt á Kaffihúsi Heiðmerkur og svo mætti lengi telja.

Um síðustu helgi opnaði Jólaskógurinn á Hólmsheiði. 

Jólamarkaðurinn og Jólaskógurinn verða opin næstu tvær helgar. Jólamarkaðurinn frá kl. 12 til 17 en Jólaskógurinn frá 11-16. Síðustu dagana fyrir jóla verður svo skógarstemning og jólatrjáasala á Lækjartorgi í samstarfi við Reykjavíkurborg.

Nánari upplýsingar um jólaviðburði Skógræktarfélags Reykjavíkur má finna hér.