Jólaviðburðir Skógræktarfélags Reykjavíkur

Skógræktarfélag Reykjavíkur stendur fyrir fjölda viðburða á aðventunni. Skógarmenning með notalegri jólastemningu er í forgrunni. Á Jólamarkaðnum í Heiðmörk er fjölskylduvæn dagskrá allar aðventuhelgar, hægt að njóta veitinga og kaupa jólatré og handverk. Í Jólaskóginum á Hólmsheiði er hægt að höggva eigið jólatré. Dagana fyrir jól verður félagið með árlega jólatrjáasölu á Lækjartorgi.

Jólamarkaðurinn í Heiðmörk

Handverk, jólagjafir, jólatré, kaffihús, varðeldur og skemmtileg dagskrá fyrir alla fjölskylduna.

Jólaskógurinn

Finndu og felldu þitt eigið jólatré. Jólasveinar verða á ferli í skóginum milli 13 og 14. Varðeldur og veitingar.

Jólatrjáasala Lækjartorgi

Jólatrjáasala er á Lækjartorgi dagana fyrir jól, í samstarfi við Reykjavíkurborg. Jólastemningin úr skóginum kemur í bæinn.

Torgtré og pantanir

Fyrirtæki og stofnanir geta pantað jólatré af öllum stærðum. Torgtré, jólatré og tröpputré.

Skógræktarfélag Reykjavíkur er frjáls félagasamtök sem vinna að skógrækt, styðja við útivist og skógarmenningu og margt fleira.  Með því að kaupa jólatré af félaginu, eða ganga í félagið, styður þú við þetta starf.

Með jólaviðburðunum vill félagið stuðla að ævintýralegum upplifunum í skóginum þar sem fólk getur valið fallegt jólatré og notið útiveru. Megnið af jólatrjánum sem Skógræktarfélagið selur, koma úr Heiðmörk og falla til sem hluti af nauðsynlegri grisjun og umhirðu skógarins. Öll jólatrén eru úr sjálfbærri grisjun og stuttflutt.