Á döfinni

Frá lofti í við – áhrif skóga og skógræktar á gróðurhúsalofttegundir

Mánudaginn 23. nóvember næstkomandi kl 19:30 efna Skógræktarfélag Reykjavíkur og Garðyrkjufélag Íslands til fræðslufundar í sal Garðyrkjufélagsins í Síðumúla 1 Reykjavík.

Arnór Snorrason skógfræðingur flytur erindi sem hann nefnir „Frá lofti í við – áhrif skóga og skógræktar á gróðurhúsalofttegundir

Umræða um losun koltvíoxíðs út í andrúmsloftið og hvaða afleiðingar sú aukning kann að hafa loftslag hefur verið mörgum hugleikin, ekki síst nú um stundir í aðdraganda Parísarfundarins þar sem þjóðir heims ætla sér að sammælast um aðgerðir til að koma í veg fyrir skaðlega hlýnun jarðar.

Á Íslandi hafa farið fram rannsóknir á bindingu kolefnis með skógrækt til að vega upp á móti losun gróðurhúsalofttegunda.

Arnór Snorrason skógfræðingur á Rannsóknarstöð skógræktar á Mógilsá hefur um árabil rannsakað og mælt bindingu kolefnis í skógum á Íslandi. Í erindi sínu ætlar

Arnór að fjalla um hvernig skógar hafa áhrif á gróðurhúsaloftegundir. Hver staðan sé hér á landi varðandi kolefnisbindingu með skógrækt og framtíðarmöguleika skógræktar sem leiðar til að milda áhrif loftslagsbreytinga.

Fræðslufundurinn er öllum opinn

Aðgangseyri er krónur 750

Helgi Gíslason framkvæmdastjóri
Skógræktarfélags Reykjavíkur