Fréttir

Dagskrá Vormarkaðarins Elliðavatni 13.-15. maí

net-_002

Opnunartímar:

Föstudag 13. maí klukkan 15-18.

Laugardag 14. maí klukkan 10-18.

Sunnudag 15. maí klukkan 10-18.

Félag trérennismiða er með sölusýningu í Gamla salnum og verður með heitt á könnunni alla dagana. Einnig sýnikennsla á Hlaðinu. Gámaþjónusta verður með kynningu og býður ókeypis moltu í garðinn. Fuglavernd kynnir starfsemina. Skógræktarfélagið býður  til sölu bolvið, kurl, hnaustré og eldivið. Auk þess verða eftirtalin atriði:

 

Föstudagur:

–Einar Guðnason kynnir fluguhnýtingar klukkan 16-18.

 

Laugardagur:

–Bjarni Þór Kristjánsson eldsmiður að störfum á Hlaðinu, mætir klukkan 10.

–Einar Guðnason kynnir listin að kasta flugu klukkan 13-16.

–Eftir hádegi um klukkan 14-16 munu skógarmenn Skógræktarfélagsins sýna nýjar vélar að störfum á Hlaðinu við bæinn: Skógarútkeyrsluvél og dráttarvélatengdan eldiviðarkljúf.

–Íslenski hesturinn ehf. með hestaleigu klukkan 11-13. Teymt undir börnum í gerði við bæinn.

–Ferðafélag Íslands: Gönguferð um Ferðafélagsreitinn í Heiðmörk. Lagt upp frá bílastæði  við Skógarhlíðarkrika (efst við Heiðarveg) klukkan 11.

–Kynning á stafgöngu á vegum ÍSÍ klukkan 13.

–Fuglavernd: Fuglaskoðun á bökkum Elliðavatns kl 15.

–Ásatrúarfélagið: Vorblót að Vatni. Gróandanum fagnað klukkan 17. Allir velkomnir!

 

Sunnudagur:

–Einar Guðnason stendur fyrir kastkeppni á túninu neðan við bæinn klukkan 13-15.

–Fuglavernd. Fuglaskoðun. Lagt upp frá bænum klukkan 15.