Fréttir

Smiður, leiðsögumaður, sjúkraflutningamaður og margt fleira

Guðmundur Fannar Markússon – Mummi – er nýr starfsmaður félagsins. Hann mun einkum starfa í viðarvinnslunni en einnig við skógarumhirðu og önnur stöf. Mikill áhugi var á starfi hjá félaginu þegar það var auglýst og bárust yfir 90 umsóknir.

Mummi er fyrrverandi ferðaþjónustubóndi, leiðsögumaður, staðarhaldari í Básum í Þórsmörk og sjúkraflutningamaður. Þá vann hann sem smiður í nokkur ár og hefur grunn í húsasmíði, sem ætti að nýtast vel í viðarvinnslunni.

„Svo er ég bara hlaupari, hjólari, björgunarsveitarmaður. Pabbi er gamall skáti. Þessi útivistar eða útiverubaktería byrjaði örugglega snemma“ segir Mummi. Hann hefur verið leiðsögumaður síðan hann var 18 ára – við flúðasiglingar, fjallahjólaferðamennsku og jeppaferðir. Hann er því vanur að taka á móti fólki sem vill komast út í náttúruna og gera eitthvað skemmtilegt.

„Mér finnst sérstaklega gaman að kynna fólk fyrir svona…hrárri náttúrunni. Ekki endilega einhverjum áfangastað heldur bara að grounda fólk í náttúrunni. Það er svo fallegt þegar maður hefur verið að gæda, að stoppa aðeins og finna fyrir náttúrunni.“ Segir Mummi og bætir við að það væri gaman að geta kynnt fleirum fyrir skóginum, skjólinu og þeim góðu áhrifum sem fylgja því að vera í náttúrunni. „Sem er líka bara svo mikilvægt út af þessum hraða í samfélaginu og kulnun sem er að taka yfir.“