Skógræktarfélag Reykjavíkur stendur fyrir reglulegri umfjöllun undir yfirskriftinni „Hverju mælir þú með?“ Markmiðið er að auka áhuga og kynna margar og ólíkar hliðar á skógum, skógrækt, skógarmenningu og útivist. Fyrsti viðmælandi okkar er Þórveig Jóhannsdóttir, skógfræðingur hjá félaginu og skógarbóndadóttir af Austurlandi.
Skógargáttin fyrir þreytta ferðalanga
„Ég mæli með að fara inn á Skógargáttina (skogargatt.is) fyrir alla sem eru að ferðast um Íslands. Sérstaklega kannski fyrir fjölskyldufólk er gott að vita um góða nestisstaði þar sem er hægt að hreyfa sig aðeins í leiðinni.
Í sumar uppgötvaði ég til dæmis Hrútey á Blöndósi, sem sést frá bílastæðinu við bensínstöðina. Þar er alveg fullkominn hringur til að rölta áður en maður heldur áfram. Svo er skógarreiturinn á Siglufirði alveg æðislegur. Fullt af innviðum og göngustígum.“
Sólberja- og rabbarbarasulta
„Sólber eru hálfskuggþolin og fín í garðinum en líka skemmtileg viðbót í yndisskógum. Bæði fyrir fugla og menn. Sérstaklega gaman að sulta þau. Að sulta þau með rabbarbarasultu er alveg geggjað gott.“
Leggjast niður
„Ef maður getur gefið sér tíma, að leggjast niður bara í fimm mínútur, þá er það geggjuð slökun. Sérstaklega í skógi. Maður þarf ekkert hengirúm eða neina aðstöðu, endilega. Kannski er smá gola og maður heyrir í trjágreinunum, kannski fuglum. Það er alveg topp slökun.“
