Fréttir

Bekkir í Heiðmörk – úr Heiðmerkurtimbri

Margt er hægt að vinna úr grisjunarvið úr Heiðmörk. Meðal annars ýmiskonar bekki. Þeir falla vel inn í umhverfið og eru hentugir svo að gestir geti fengið sér sæti og notið þess sem fyrir augu ber. Loks er hægt að nota þá til að afmarka bílastæði.

Bekkirnir eru allt frá því að vera mjög einfaldir, grófir en fallegir grenibolir, yfir í sérsmíðaða bekki eða bekki með áföstu borði, þar sem það er tilvalið að fá sér sæti og kannski nesti.

Flestir bekkirnir eru úr sitkagreni sem þolir vel að standa úti og veðrast fallega. Starfsmenn félagsins hafa útbúið bekki til að nota í Heiðmörk og líka smíðað bekki eða búið til efni í bekki samkvæmt pöntun.

Í viðarvinnslu Skógræktarfélags Reykjavíkur er unnið að því að búa til sem mest verðmæti úr timbri sem fellur til við nauðsynlega grisjunar skógarins. Hluti skógarins er kominn á þann aldur að hann gefur af sér mikil verðmæti með sjálfbærri nýtingu.

Bekkurinn hér að ofan er við Stelpulund — minningarlundur um Elvu Gestsdóttur, við Elliðavatn. Bekkurinn kemur frá Skógræktarfélagi Reykjavíkur og er úr ösp. Stelpulundur er skammt frá bílastæðinu við Þingnesveg.

Þessi bekkur er í nýju trjásýnisafni í Vífilsstaðahlíð. Bekkurinn er úr sitkagreni.
Annar bekkur, ofar í hlíðinni, er svipaður, en með baki.
Skjól fyrir stjörnu- og norðurljósaskoðun við bílastæðið við Búrfellsgjá. Það var Landslag sem hannaði skjólstaðinn fyrir Garðabæ. Skjólstaðurinn og bekkirnir eru úr sitkagrenibolum úr Heiðmörk.
Skjólið er við upphaf gönguleiðarinnar að Búrfellsgjá.
Borð með bekkjum, gerð úr sitkagreni úr Heiðmörk. Borðin voru smíðuð í samstarfi við Fangaverk, nánar tiltekið fangar sem vinna á trésmíðaverkstæðinu á Litla-Hrauni. Nokkrum borðum hefur verið komið fyrir á völdum stöðum í Heiðmörk. Þeir falla mjög vel inn í náttúruna. Borðin eru einnig til sölu í verslun félagsins í Smiðjunni nærri Elliðavatnsbænum.
Borð og bekkur frá Fangaverki. Fallegt í skógarumhverfinu.
Afmælisgjöf sem Vilhjálmur Sigtryggsson deildi með gestum Heiðmerkur á níræðisafmæli sínu, 2021. Bekkurinn er í rjóðri í landnemaspildu Ferðafélags Íslands. Sigríður Óladóttir, húsgagnasmíðameistari, hannaði bekkinn sem var smíðaður í smiðju Skógræktarfélagsins að Elliðavatni. Efniviðurinn er sitkagreni úr Heiðmörk.
Tilvalið að fá sér sæti og njóta útsýnisins á fallegum degi í Heiðmörk. Myndin er tekin við Rjóðrið, skammt frá Elliðavatnsbænum, um miðjan september.
Bekkur við bílastæði og skjólhús við Helluvatn.
Einföld smíði sem hentar aðstæðum vel.
Við Elliðavatn.