Fréttir

Merk tré komin á kortið

Búið er að merkja fjölda merkilegra trjáa í Reykjavík inn í Borgarvefsjá.

Á kortinu er hægt að skoða hvar í borginni trén eru staðsett og fá um þau upplýsingar með því að smella á þau. Meðal trjánna sem hafa verið merkt inn eru þau tré í Reykjavík sem hafa verið útnefnd Tré ársins, Borgartré Reykjavíkur, Hverfistré Reykjavíkur og tré sem fengu sértaka viðurkenningu í tengslum við verkefnið, á síðasta ári.

Skógræktarfélag Reykjavíkur tók saman gögnin og brást Reykjavíkurborg vel við ósk félagsins um að upplýsingarnar yrðu settar inn í Borgarvefsjá.

Við hvetjum fólk til að skoða vefsjána. Það er líka hægt að nota tækifærið og fara um borgina og skoða merk tré í borginni, með hjálp vefsjárinnar. Í leiðinni er líka hægt að skoða önnur áhugaverð fyrirbæri sem merkt eru inn á Reykjavíkurkortið, eins og almenningsgarða eða útilistaverk.

Þessi glæsilegi hlynur var útnefndur Hverfistré Hlíða í fyrra.
Fimm tré í Reykjavík hafa verið útnefnd Tré ársins af Skógræktarfélagi Íslands. Þekktast þeirra er líklega garðahlynurinn við Suðurgötu sem var valinn tré ársins 1994.
Hverfistré borgarinnar voru merkt. Börnum úr bekkjum í nærliggjandi skógum var boðið að vera viðstödd og fræðast um leið um tré og áhrif þeirra í borgum.
Eik Háagerði 11 fær sérstaka viðurkenningu. Eikin, sem líklega er sumareik (Quercus robur), var gróðursett árið 1982. Hún hafði þá dvalið í kjallara hússins í um áratug og er því um hálfrar aldar gömul. Akarnið er úr skógi við Växjö, í sænsku Smálöndunum. Eikin nálgast nú 9 metrar hæð og kann að vera hæsta tré sinnar tegundar á Íslandi.