Laugardaginn 12. apríl verður boðið upp á námskeið um græðlinga af víði og ösp. Alaskaösp og víðir hafa þann eiginleika umfram aðrar trjátegundir á Íslandi, að hægt er að klippa græðlinga af trjám þessara tegunda og stinga þeim beint í jörðu.
Námskeiðið Klipping og stunga víði- og aspargræðlinga samanstendur af stuttum fyrirlestri og verklegri kennslu. Í upphafi námskeiðs verður fjallað um trjátegundirnar alskaösp og víði, og helstu aðferðir sem notaðar eru við klippingu og beina stungu græðlinga. Að því loknu verður farið út, efniviður klipptur og græðlingar svo útbúnir, allt undir leiðsögn. Því næst verður farið á svæði þar sem græðlingum verður stungið í jörðu.
Frábært tækifæri fyrir allt áhugafólk um ræktun að kynnast þessari aðferð við fjölgun aspar og víðis.
Leiðbeinandi á námskeiðinu er Jóhanna Bergrúnar Ólafsdóttir, aðjúnkt við Lbhí.
Námskeiðið verður í Smiðjunni, Þingnesvegi 5, Heiðmörk, skammt frá Elliðavatnsbænum. Það hefst klukkan 11:00 og stendur til um klukkan 15:00. Ágætt er ef fólk sem á litlar trjáklippur, kemur með þær með sér. Einnig verða trjáklippur á staðnum.
Námskeiðsgjald er 4.500 krónur en ókeypis er fyrir félagsmenn. Skráning í tölvupósti á netfangið [email protected].