Fréttir

3-30-300: Grænni og betri borgir

Ný þumalputtaregla um trjágróður og grænar lausnir í þéttbýli er til umfjöllunnar í nýrri skýrslu frá norrænu ráðherranefndinni. Samkvæmt reglunni ættu allir að geta séð 3 stór tré frá heimili sínu, vinnustað, skóla eða dvalarstað. Það ætti að vera að minnsta kosti 30% laufþekja í hverju hverfi. Og ekki lengra en 300 metrar í næsta græna svæði. Reglan á að styðja við líffræðilegan fjölbreytileika, loftslagsaðlögun og lýðheilsu.

Í skýrslunni er fjallað um stöðuna á Norðurlöndunum og sett fram tilmæli. Meðal annars um

  • verndun trjágróðurs og grænna svæða þegar verið er að þétta byggð.
  • þátttöku almennings í trjáræktarverkefnum.
  • að það þurfi að vera nóg af trjám og grænum svæðum fyrir nýbyggingar.
  • að varðveita og hlúa að trjám sem fyrir eru í borgarlandslaginu, sérstaklega eldri trjám enda veiti þau meiri vistkerfisþjónustu en smærri tré.

Skýrsluhöfundar mælast líka til að trjáræktarstefna verði fléttuð inn í skipulags- og þróunarstefnu: „Til að hámarka félagslegan og efnahagslegan ávinning þarf að flétta trjáræktarstefnu í almenna skipulags- og þróunarstefnu í þéttbýli.“

Í skýrslunni kemur fram að staðan sé best í Finnlandi og Noregi, meðan Íslendingar og Grænlendingar standi frammi fyrir talsverðum áskorunum, svo sem eðlilegt er. Athygli vekur að Færeyingar standa miklu betur en Íslendingar á öllum mælikvörðunum þremur.

Almennt eru miklu færri tré og verri aðgangur að grænum svæðum á Íslandi heldur en annars staðar á Norðurlöndnum, ef Grænland er undanskilið.

–Aðeins 40% bygginga á Íslandi uppfylla regluna um að hægt sé að sjá þrjú stór tré þaðan. Hlutfallið er 70-97% annars staðar á Norðulöndunum.

–Aðeins 4% bygginga eru í hverfum þar sem laufþekjan er 30%, samanborið við 92% í Finnlandi, 80% í Svíþjóð og 18,5% í Færeyjum.

–Talsvert lengra er í græn svæði á Íslandi en víðast annars staðar. Á Íslandi eru að jafnaði 328 metrar í næsta græna svæði. Samborið við 23 metra í Finnlandi; 27 í Svíþjóð og 61 metri í Danmörku.

Við mælum með þessari áhugaverðu skýrslu.