Fréttir

Jólamarkaður – opið fyrir umsóknir

Handverksmarkaður er órjúfanlegur hluti Jólamarkaðarins en þar geta gestir keypt spennandi vörur til gjafa eða eigin nota. Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um þátttöku og er umsóknarfrestur til 25. október, öllum umsóknum verður svarað 1. nóvember.

 

Söluaðilar á handverksmarkaðnum

Söluaðilum býðst að leigja söluborð eina eða fleiri aðventuhelgar. Sérstök áhersla er lögð á handverk úr náttúrulegum efnum sem og innlenda matargerð og snyrtivörur. Markaðsborð eru staðsett í tveimur samliggjandi sölum í Elliðavatnsbænum. Söluaðilar fá borð (150×80 cm), stóla og aðgang að rafmagni. Svæðið er fallega skreytt og upplýst. Skógræktarfélag Reykjavíkur sér um markaðssetningu og kynningu bæði í hefðbundnum miðlum og á samfélagsmiðlum.

 

Á handverksmarkaðnum er lögð áhersla á:

  • Vandaðar handunnar vörur úr náttúrulegum efnum.
  • Listhandverk úr viði eða með vísun í skógarmenningu.
  • Innlend matvæli og snyrtivörur.

 

Jólamarkaðurinn verður opinn þrjár aðventuhelgar milli kl. 12 – 17.

Fyrsta aðventuhelgin ● 30. nóvember – 1. desember

Önnur aðventuhelgin ● 7. – 8. desember

Þriðja aðventuhelgin ● 14. – 15. desember

Fjórða aðventuhelgin ● 21. – 22. desember

 

Umsóknarfrestur og verð

Umsóknarfrestur er til miðnættis 25. október á netfangið – jolamarkadur (hjá) heidmork.is – öllum umsóknum verður svarað 1. nóvember.

 

Umsókninni skal fylgja:

– Nafn, netfang og símanúmer umsækjanda. 

– Heiti og lýsing á söluvöru.

– Mynd / myndir af söluvöru sem nota má í kynningarefni.

– Kennitala greiðanda vegna leigu á sölubás. 

– Ósk um aðventuhelgi / helgar.

 

Verð fyrir söluborð:

Ein helgi: 15.000 kr.

Tvær helgar: 26.000 kr.

Þrjár helgar: 36.000 kr.

Fjórar helgar: 45.000 kr 

ATHUGIРsöluborð eru ekki leigð út staka daga.

 

Svör

Svör við umsóknum verða send til þátttakenda 1. nóvember. Við val á þátttakendum er tekið mið af þeirri vörustefnu sem Jólamarkaðurinn setur. Lögð er áhersla á vandaðar handunnar vörur úr náttúrulegum efnum, listhandverk úr viði eða með vísun í skógarmenningu og innlend matvæli og snyrtivöru. Ásókn í söluborð á handverksmarkaðnum hefur undanfarin ár verið mun meiri heldur en framboðið. Af þessum sökum er nauðsynlegt að velja úr umsóknum.

 

Nánari upplýsingar

Hjördís Jónsdóttir, jólamarkaðsstjóri, sími 863 7614 – jolamarkadur (hjá) heidmork.is

Á Jólamarkaðnum í Heiðmörk 2023. Mynd: Hjördís Jónsdóttir.