Jólaskógurinn verður nú opinn á nýjum stað eða í Grýludal við Hjallabraut (sjá kort).
Þar eru þúsundir glæsilegra jólatrjáa við allra hæfi. Fyrirkomulagið verður annars það sama og áður:
Opið klukkan 11-16 tvær helgar fyrir jól.
Jólatré að eigin vali, verð 6.000 krónur.
Jólasveinar, kakó, piparkökur og varðeldur.
Tilvalið fyrir fjölskylduna að velja sitt eigið tré og njóta vetrarstemmningar í Heiðmörkinni!