Hinn árlegi Esjudagur verður næstkomandi laugardag 27. júní og byrjar kl 13. Að vanda verður farið í ratleik í hlíðum fjallsins, hlaupið og gengið á Þverfellshorn og Trjásafnið á Mógilsá skoðað. Sveppi kemur líka í heimsókn og tekur þátt í húllumhæi með börnunum á bílastæðinu við Kollafjörð. Sjá einnig heimasíðu Ferðafélagsins: http://fi.is/forsida/
Á myndinni hér fyrir ofan má sjá gróskumikinn skógarkerfil í túninu ofan við Mógilsá, í fjarska sést Kistufell og skaflinn frægi í Gunnlaugsskarði. Neðri myndirnar eru teknar í Trjásafninu á Mógilsá.