Fréttir

Bílaumferð takmörkuð vegna hálku um hluta Heiðmerkur

Vegna mikillar hálku hafa Veitur óskað eftir því að það verði lokað fyrir bílaumferð um hluta Heiðmerkur tímabundið, með tilliti til vatnsverndar. Áfram verður hægt að aka yfir Helluvatn, þar sem er ágætt bílastæði; að Elliðavatnsbænum; og að bílastæðinu við Heimaás. Sjá kortið hér að neðan.

Þetta hefur engin áhrif á jólaviðburði félagsins.

Heiðmerkurvegur er lokaður frá og með bílastæðinu við Heimaás, Reykjavíkurmegin.

Garðabæjarmegin er búið að loka við bílastæðið við Búrfell.

Áfram er því hægt að koma í Heiðmörk og njóta útivistar í fallegu umhverfi. Gönguleiðir og stígar eru merkt inn á kort af Heiðmörk sem nálgast má hér.

Þegar færð batnar og opnað verður á ný, færum við fréttir af því.