Fréttir

Starf við skógarumhirðu í Heiðmörk

Við leitum að liðsauka í stórskemmtilegt starf við grisjun og skógarumhirðu í Heiðmörk.
Starfsmaðurinn vinnur með góðu teymi að grisjun og vélavinnu í skóginum. Þá tekur hann þátt í að fullvinna afurðir skógarins í viðarvinnslunni og kemur að fjölbreyttum verkefnum félagsins. Spennandi útivistarstarf og góðan félagsskap fyrir réttan aðila.
Rík áhersla er lögð á öryggi, vatnsvernd og varkárni á viðkvæmum náttúruverndarsvæðum.
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Grisjun og umhirða í skógi
  • Útkeyrsla á bolvið úr skóginum
  • Eftirlit og viðhald á vélum og tækjabúnaði
  • Við vinnslu: kurla og framleiða eldivið
  • Tilfallandi skógarvinna í Heiðmörk og öðrum skógum sem félagið rekur
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Bílpróf og vinnuvélapróf
  • Kostur að hafa menntun sem tengist skógrækt eða landbúnaði
  • Æskilegt að umsækjandi búi yfir hæfni til að stýra og vinna á vélum á öruggan hátt
  • Kostur ef umsækjandi hefur menntun eða reynslu af viðhaldi véla og tækja
  • Góð færni í mannlegum samskiptum og geta til að vinna sjálfstætt
  • Umsækjandi þarf að vera 22 ára eða eldri
  • Umsækjandi þarf að búa yfir vilja og burði til líkamlegrar vinnu
  • Kostur ef umsækjandi hefur réttindi og reynslu af vinnu með keðjusög
  • Mikilvægt að virða öryggisreglur og sýna varkárni við stjórn vinnuvéla
Fjölbreytt 100% starf í skóginum í Heiðmörk.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags.
Umsókn skal senda ásamt ferilskrá á netfangið [email protected]
Skógræktarfélag Reykjavíkur er sjálfstætt starfandi félagasamtök sem vinna að skógrækt og landbótum ásamt uppbyggingu og umhirðu útivistarsvæða, fræðslu, rannsóknum og skógarmenningu. Meðal svæða sem félagið sér um, eru Heiðmörk og Esjuhlíðar.