Torgtré og pantanir

íslensk jólatré af öllum stærðum úr Heiðmörk

Fyrirtæki og stofnanir geta pantað jólatré af öllum stærðum frá Skógræktarfélagi Reykjavíkur. Starfsmenn félagsins hafa mikla reynslu af því að velja og afhenda tré. Til dæmis stórar pantanir á tröpputrjám, jólatré fyrir skóla, fyrirtæki og stofnanir, og Oslóartréð í Reykjavík.

Við afgreiðum torgtré, jólatré og tröpputré. Jólatrén eru sótt í skóginn í Heiðmörk með sjálfbærum hætti. Þau eru stuttflutt og án eiturefna.

Pantanir og fyrirspurnir sendist á sala (hjá) heidmork.is

Skógræktarfélag Reykjavíkur er frjáls félagasamtök sem vinna að skógrækt, styðja við útivist og skógarmenningu og margt fleira.  Með því að kaupa jólatré af félaginu, eða ganga í félagið, styður þú við þetta starf.