Jólaskógur Skógræktarfélags Reykjavíkur

opið laugardaga og sunnudaga, milli kl. 11 og 16, aðventuhelgarnar 5.-6.; 12.-13. og 19.-20. desember

Það er orðin hefð í mörgum fjölskyldum og vinahópum að koma í Jólaskóg Skógræktarfélags Reykjavíkur á aðventunni og höggva sitt eigið jólatré.

Það er sannkölluð jólastemmning í skóginum. Jólasveinar eru á ferli milli klukkan 13 og 14 alla opnunardaga. Hægt er að fá sér sæti við varðeld sem logar við jólakofann, þar sem hægt er að kaupa heitt kakó, smákökur og sykurpúða til að grilla yfir eldinum.

Hægt er að fá lánaðar sagir en einnig hvetjum við gesti til að taka með sér sínar eigin sagir.

Jólaskógurinn á Hólmsheiði 2026 verður opinn helgarnar

  • 5. – 6. desember, kl. 11–16
  • 12. – 13. desember, kl. 11–16
  • 19. – 20. desember, kl. 11–16

 

Félagsmenn Skógræktarfélags Reykjavíkur fá 15% afslátt af jólatrjám.

Staðsetninguna má sjá hér til hliðar. Eða á Google maps hér.

Íslensk jólatré eru vistvæn og sjálfbær. Þau eru ræktuð án eiturefna og eru ekki flutt á milli landa og hafa því mun minna kolefnisspor en innflutt tré. Fyrir hvert tré sem höggvið er, gróðursetur Skógræktarfélag Reykjavíkur 50 trjáplöntur.

Skógræktarfélag Reykjavíkur er frjáls félagasamtök sem vinna að skógrækt, styðja við útivist og skógarmenningu og margt fleira.  Með því að kaupa jólatré af félaginu, eða ganga í félagið, styður þú við þetta starf.