Jólatrjáasala Lækjartorgi

Dagana fyrir jól komum við með jólastemninguna úr skóginum niður í miðbæ Reykjavíkur, í samstarfi við Reykjavíkurborg. Í Gróðurhúsinu á Lækjartorgi verður hægt að kaupa jólatré, tröpputré og greinabúnt.

Opnunartímar 2026
  • 11.des – kl 15 – 19
  • 12.des – kl 14 – 18
  • 13.des – kl 14 – 18
  • 14.des – Lokað
  • 15.des – Lokað
  • 16.des – kl 15 – 19
  • 17.des – kl 15 – 19
  • 18.des – kl 15 – 19
  • 19.des – kl 14 – 18
  • 20.des – kl 14 – 18
  • 21.des – kl 15 – 19
  • 22.des – kl 15 – 19

Skógræktarfélag Reykjavíkur er frjáls félagasamtök sem vinna að skógrækt, styðja við útivist og skógarmenningu og margt fleira.  Með því að kaupa jólatré af félaginu, eða ganga í félagið, styður þú við þetta starf.