Jólamarkaðurinn í Heiðmörk

opið allar aðventuhelgar, laugardaga og sunnudaga, milli kl. 12 og 17

Með Jólamarkaðnum í Heiðmörk vill Skógræktarfélag Reykjavíkur stuðla að ævintýralegri upplifun í vetrarparadísinni Heiðmörk þar sem fólk getur notið útiveru í skóginum, valið fallegt jólatré, tröpputré og einstakar gjafir á handverksmarkaðnum, og fengið sér kökur og heitt kakó. Félagið selur aðeins íslensk jólatré. Fyrir hvert jólatré sem selst eru 50 gróðursett.

Gestum er bent á að klæða sig vel og njóta útivistarsvæðisins í Heiðmörk um leið og Jólamarkaðurinn er heimsóttur.

Skógræktarfélag Reykjavíkur er frjáls félagasamtök sem vinna að skógrækt, styðja við útivist og skógarmenningu og margt fleira.  Með því að kaupa jólatré af félaginu, eða ganga í félagið, styður þú við þetta starf.

Jólamarkaðurinn verður í Heiðmörk allar fjórar aðventuhelgarnar, frá klukkan 12:00 til 17:00. Jólamarkaðurinn opnar með hátíðlegum hætti laugardaginn 28. nóvember klukkan 12.

Fyrsta aðventuhelgin verður helguð rólegri skógarstemningu. Boðið verður upp á shinrin-yoku, leidda hugleiðslu og núvitundargöngu um Heiðmörk.

Kór Norðlingaskóla syngur á opnun Jólamarkaðsins. Kaffihús Heiðmerkur opnar í jólakjallaranum. Handverksmarkaðurinn opnar í Gamla salnum. Jólamarkaðstréð verður frumsýnt með nýju listaverki. Rithöfundar lesa úr nýútkomnum bókum sínum í Rjóðrinu, við varðeld, klukkan 14, bæði laugardag og sunnudag.

Jólamarkaðurinn í Heiðmörk er opinn

  • 28.–29. nóvember kl. 12:00–17:00
  • 5.–6. desember kl. 12:00–17:00
  • 12.–13. desember kl. 12:00–17:00
  • 19.–20. desember kl. 12:00–17:00

Handverksmarkaðurinn

Á handverksmarkaðnum er hægt að finna einstakar jólagjafir unnar af handverksfólki, bændum í matvælavinnslu og listamönnum.

Mikið af vörunum eru ekki aðgengilegar í verslunum svo hér gefst einstakt tækifæri til að versla bæði spennandi matvörur og jólagjafir á einum stað. Sérstök áhersla er lögð á vandaðar handunnar vörur úr náttúrulegum efnum, listaverk úr viði svo og innlend matvæli og snyrtivörur. 

Handverksmarkaðurinn er í Gamla salnum í Elliðavatnsbænum auk þess sem sölukofar eru á torginu við bæinn. Eldsmiður verður að störfum úti við og fleira spennandi að gerast.  

Jólatré, tröpputré og greinabúnt

Á Jólamarkaðnum er hægt að kaupa jólatré, tröpputré og greinabúnt. Trén og greinarnar falla til við nauðsynlega grisjun og umhirðu skógarins og eru flest úr Heiðmörk. Öll trén á markaðnum eru íslensk og stuttflutt. Kolefnisspor þeirra er margfalt minna en innfluttra trjáa og þau eru ræktuð án skordýraeiturs. Fyrir hvert selt tré eru 50 gróðursett.

Skógræktarfélagið fagnar fjölbreytileikanum og hefur um árabil boðið upp á Einstök jólatré. Þetta eru tré með mikla sérstöðu og eru í öllum stærðum, gerðum, formum og tegundum, oft mjög skúlptúrísk.

Verðskrá fyrir jólatré og tröpputré.

Barnastund í Rjóðrinu

Barnastund verður í Rjóðrinu, nærri Elliðavatnsbænum, á hverjum opnunardegi markaðarins, klukkan 14. Þar lesa höfundar barnabóka úr nýjum bókum. Undanfarin ár hefur oft myndast ævintýraleg skógarstemmning í Rjóðrinu, við varðeld í skjóli trjánna.

Jólakjallarinn og veitingar

Veitingar eru til sölu á jólamarkaðnum – heitir drykkir, smákökur og mandarínur. Hægt er að njóta þeirra úti eða setjast inn í jólasalinn sem skreyttur hefur verið í kjallara Elliðavatnsbæjarins.